Ég var aðeins og bjartsýn með að ná að setja boðskortin í póst á föstudaginn. Ég var að vinna svo mikið um helgina að ég náði ekki að klára þetta fyrr en bara núna. Svo ég ætla að skreppa með þau út á pósthús. En ég og Raggi fórum í kringluna í gær og skráðum gjafalista í Dúku. Við þurfum samt að fara aftur í Byggt og búið og skoða hvað við vorum búin að skrá þar. Þegar við vorum í búðinni í gær þá var þetta svolítið svona: Vorum við búin að skrá svona á hinum staðnum? Æj ég man það ekki.
Þar til síðar...
Guðrún
No comments:
Post a Comment