Thursday, July 15, 2010

Veislustjórn og skelfiskur

Góðan og blessaðan daginn :)

Mig langar að koma nokkrum atriðum á framfæri. Það fyrsta er að hann Alfreð Ingvar Péturson vinur okkar mun vera veislustjóri hjá okkur. Ef einhver hefur hugsað sér að halda ræðu eða vera með einhverskonar skemmtiatriði þá er best að láta hann vita af því með því að senda honum tölvupóst á netfangið alfredingvar@gmail.com.

Annað; Ef fólk borðar ekki kjöt væri gott að fá að vita af því. Það má gera með því að senda tölvupóst á raggisteinn@gmail.com.

Þriðja atriðið er það að við erum búin að skrá tvo nýja gjafalista. Það er í búðunum Kúnígúnd og Tékk kristal. Allir listarnir okkar eru sem sagt í Kringlunni.

No comments:

Post a Comment