Fyrst þú ert að skoða þessa síðu þá er mjög líklegt að þú hafir fengið boðskort í brúðkaupið okkar Ragga. Ef þú hefur hins vegar bara lent inná þessari síðu af tilviljun og ert ekki boðin þá langar mig að segja að það var mjög mikill hausverkur fyrir okkur að setja gestalistann saman. Sérstaklega vegna þess að ég á svo marga ættingja og vini sem ég hefði gjarnan viljað bjóða. Hins vegar vildum við ekki vera með 200 manna veislu.
Akkúrat núna er ég heima hjá Birnu ömmu að bíða eftir lokaútgáfunni að boðskortunum okkar sem hann Alli er svo góður að búa til fyrir okkur. Ég vona að ég nái að prenta þau út og setja í póst áður en ég fer að vinna kl 4.
En það er bara allt að smella saman þó það sé ýmislegt sem við eigum eftir að skipuleggja ennþá. Ein vinkona mín sagði mér einu sinni að það væri nauðsynlegt að hafa heilt ár til að skipuleggja brúðkaup af því að maður þyrfti að panta kirkju og sal með svo löngum fyrirvara. Við vorum hins vegar svo heppin að fyrsta kirkja og fyrsti salur sem við spurðumst fyrir um voru laus. Að vísu var Neskirkja ekki mitt fyrsta val því að mig langaði svo mikið að gifta mig í Skálholti. En eftir ábendingar úr ýmsum áttum um að það væri svo leiðinlegt fyrir gestina að þurfa að keyra svona langt þá ákvaðum við að finna bara kirkju í Reykjavík. Þar sem ég var skírð í Neskirkju fannst mér hún alveg tilvalin.
Í sambandi við spurninguna sem allir spurja: Hvað langar ykkur í í brúðargjöf? Þá get ég sagt að við erum búin að skrá gjafalista í Byggt og búið í Kringlunni. Ég var að hugsa um að biðja Ragga um að fara kannski í einhverja aðra búð með mér líka til þess að auka fjölbreytnina. En ég vil nú samt taka það fram að við munum ekki vera eins og hjartadrottningin í Lísu í undralandi. Við gleðjumst við að sjá alla sama hvort þeir mæta tómhenntir eður ei.
Nei, ég held að heilt ár sé ekkert endilega nauðsynlegt, það er alveg hægt að skipuleggja brúðkaup á nokkrum vikum ef svo ber undir. Mér sýnist nú bara allt vera á góðri leið og ég er farin að hlakka mikið til :o)
ReplyDelete